Ný fjölnota félagsaðstaða í Lambamýri 1 á Álftanesi hefur verið opnuð. Hönnun var í höndum Nordic Office of Architecture og framkvæmdin unnin af Þingvangi ehf. Aðstaðan mun m.a. hýsa félagsstarf eldri borgara á Álftanesi og Félag eldri borgara á Álftanesi (FEBÁ) mun hafa aðsetur í nýju húsnæði. Við óskum þeim innilega til hamingju.